Fasteignamiðlun logo
Skráð 21. okt. 2024

Vesturgata 7

EinbýlishúsNorðurland/Ólafsfjörður-625
89.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
43.000.000 kr.
Fermetraverð
478.842 kr./m2
Fasteignamat
24.500.000 kr.
Brunabótamat
43.200.000 kr.
Fasteignamiðlun
AE
Arndís Erla Jónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1965
Þvottahús
Garður
Tveir inngangar
Fasteignanúmer
2154377
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
St+hlaðið
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
ágætt
Raflagnir
ágætt
Frárennslislagnir
ekki vitað
Gluggar / Gler
ágætt
Þak
ágætt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
já
Lóð
100
Upphitun
já
Inngangur
Tveir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignamiðlun kynnir eignina Vesturgata 7, 625 Ólafsfjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 215-4377 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Vesturgata 7 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 215-4377, birt stærð 89.8 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur arndis@fasteignamidlun.is.


Um er að ræða mikið uppgert einbýlishús á einni hæð með góðum garði. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, stofu, baðherbergi, tveimur svefnherbergjum (möguleiki á þriðja), þvottahúsi og geymslu. Vatnslagnir hafa verið endurnýjaðar sem og rafmagn og rafmagnstafla. Eldhús og baðherbergi hafa verið endurnýjað og skólp var endurnýjað út í götu árið 2017. Þak var endurnýjað að fullu árið 2025 og eignin máluð að utan sem og gluggar árið 2026. Fljótandi parket er á eigninni fyrir utan votrými. Skipt hefur verið um gler í flestum gluggum. Skipt var um einangrun á háalofti og ný lúga sett einnig var sett ný sérsmíðuð loftöndun. Steypt plan er við eignina með hitalögnum í að hluta og plan fyrir framan eign er hellulagt. Skýli er fyrir fjórar sorptunnur úr timbri. Ljósleiðari hefur verið tekin inn í eign. 

Forstofa: er flísalögð með ljósum flísum og ágætis fatahengi. 
Eldhús: er rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi. Hvítar Ikea innréttingar, með veggplötum á milli og á vegg og ljósri borðplötu. 
Stofa: er með parket á gólfi og góðu gluggaplássi. 
Baðherbergi: er flísalagt í hólf og gólf með hvítum innréttingum, vask, upphengdu klósetti og rúmgóðum sturtuklefa með sturtugleri. Hiti er í gólfi og handklæðaofn. 
Svefnherbergi: eru tvö misstór með parket á gólfi. Hjónaherbergi er með nýlegum fataskáp. Rennihurð er á eldhúsi og rými inn af því sem möguleiki er á að nýta sem svefnherbergi. 
Þvottahús: er flísalagt með hvítum skápum, vask og sérútgang. Aðgangur er upp á háaloft eignarinnar úr þvottahúsi. 
Garður: er mjög rúmgóður með timburpall og er grasi gróinn. Þvottasnúrur eru í garði.  

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fasteignamiðlun ehf. - Grandagarður 5 - 101 Reykjavík - Arndís Erla Jónsdóttir löggiltur fasteignasali í Fjallabyggð
 

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Hafnartún 32
580 Siglufjörður
111 m2
Einbýlishús á tveimur hæðum
423
405 þ.kr./m2
45.000.000 kr.
Fasteignamiðlun logo
Fasteignamiðlun var stofnuð árið 1979. Við leggjum áherslu á traust og vönduð vinnubrögð. Tökum að okkur að selja fasteignir og veita ráðgjöf til kaupenda fasteigna. Gerum verðmöt fyrir lánastofnanir og einstaklinga og alla almenna ráðgjöf um fasteignamál.
Hafðu samband
sverrir@fasteignamidlun.isS: 575 8500
Grandagarður 5
kt. 660220-1000
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - Fasteignamiðlun
Knúið af
Fasteignaleitin